Innipúkinn – Hátíð í miðborg Reykjavíkur

Innipúkinn verður haldinn í 19. sinn í miðborg Reykjavíkur um verslunarmannahelgina. Miðasala hefst með forsölu í Sambandsappinu á fimmtudag – og skipuleggjendur hátíðarhaldanna tilkynna nú um fyrstu listamennina og hljómsveitirnar sem koma fram á hátíðinni í ár. Nýlega var tilkynnt að hátíðin muni færa sig af Grandanum, þar sem hún var í fyrra, og yfir á Ingólfsstræti. Er stefnt að því að loka hluta götunnar og mun aðaldagskrá hátíðarinnar fara fram inni í Gamla bíó en hliðardagskrá verður svo á Röntgen. Verður boðið verður upp á fjölbreytta tónleikadagskrá föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld, 31. júlí – 2. ágúst. Það er alltaf gott veður á Innipúkanum. Og bara gaman.
Dagskráin í ár er einstaklega glæsileg og fjölbreytt – en þeir listamenn sem tilkynnt er um núna í dag að komi fram á hátíðinni eru; Bríet, Emmsjé Gauti, Flóni, GDRN, gugusar, Hipsumhaps, krassasig, Mammút, Reykjavíkurdætur, Skoffín og Une Misére. Tilkynnt verður um fleiri listamenn á næstu dögum og vikum.
Líkt og undanfarin ár er ráðgert að standa fyrir ókeypis hátíðardagskrá utandyra yfir hátíðardagana, og verður því alvöru hátíðarstemning fyrir utan staðina á Ingólfsstræti. Á útisvæðinu má gera má ráð fyrir gamalreyndum púka-dagskrárliðum á borð við árlegum lista- og fatamarkaði, ásamt plötusnúðum og veitingasölu. Bara gaman!
Síðustu ár hefur verið uppselt á Innipúkann – og því um að gera tryggja sér miða í tíma.
Listamennirnir sem nú eru kynntir til leiks:
– Bríet
– Emmsjé Gauti
– Flóni
– GDRN
– gugusar
– Hipsumhaps
– krassasig
– Mammút
– Reykjavíkurdætur
– Skoffín
– Une Misére
Fleiri nöfn verða tilkynnt á næstunni.

Miðasala
Miðasala á hátíðina hefts formlega í byrjun næstu viku hjá Tix.is en forsala miða hefst fyrir meðlimi Sambandsins í Sambandsappinu á fimmtudaginn. Armband á hátíðina gildir alla helgina, bæði í Gamla bíó og á efri hæð Röntgen. Einnig er hægt að kaupa miða inn á stök kvöld. Götuhátíðardagskráin sem fram fer yfir daginn er ókeypis og opin öllum.

Miðaverðið
– Helgarpassi: 8.990 kr.
– Miði á stakt kvöld: 4.990 kr.
Auglýsing

læk

Instagram