Íslandsmótinu í hestaíþróttum hefur verið aflýst

Tekin hefur verið sú ákvörðun að aflýsa fyrirhuguðu Íslandsmóti fullorðinna og ungmenna í hestaíþróttum sem fara átti fram 12. til 16. ágúst á Hellu.

„Við þessar fordæmalausu aðstæður sem COVID-19 veiran hefur kallað yfir heimsbyggðina hefur Landssamband hestamannafélaga haft samfélagslega ábyrgð í forgrunni við allar ákvarðanatökur sem við höfum staðið frammi fyrir og er svo einnig núna,“ segir í tilkynningu frá Landssambandi hestamannafélaga.

„Við teljum ekki forsvaranlegt í ljósi aðstæðna að Íslandsmótið 2020 verið haldið og höfum því ákveðið, í samráði við Hestamannafélagið Geysi, að aflýsa því.“

Greint er frá þessu á vef sunnlenska

Auglýsing

læk

Instagram