today-is-a-good-day

Júlían bætti sitt eigið heimsmet í réttstöðulyftu

Íslandsmótið í kraftlyfingum fer nú fram í Fagralundi í Kópavogi. Kraftlyftingamaðurinn Júlí­an J.K. Jó­hanns­son bætti í dag sitt eigið heimsmet í réttstöðulyftu í +120 kg flokki, í annað sinn. Þetta kemur fram á vef mbl

Hann lyfti í dag 409 kílóum en hans fyrra met var 405,5 kíló. Það met sló hann á heims­meist­ara­mót­inu í kraft­lyft­ing­um  í Dúbaí árið 2019. Hann var kjörinn íþróttamaður árs­ins 2019 af Sam­tök­um íþróttaf­rétta­manna í kjölfarið af því.

Auglýsing

læk

Instagram