Jóhanna Guðrún heima í stofu hjá þér | Sala hefst á mánudag

Söngkonan Jóhanna Guðrún heldur þorláksmessutónleika í beinni frá Garðakirkju, heima í stofu hjá þér, miðvikudaginn 23. desember.

Með Jóhönnu verður gítarleikarinn Davíð Sigurgeirsson.

Jóhanna og Davíð ætla að skapa notalega jólastemningu og flytja sín uppáhalds jólalög í fallegum útsetningum fyrir gítar og söng, í beinni frá einni fallegustu kirkju landsins.

Sérstakt forsöluverð er aðeins 2.000 krónur og aðeins þarf að kaupa einn miða fyrir hvert heimili.

Streymið er aðgengilegt í gegnum vafra í hvaða nettengda tæki sem er og einnig er einfalt að varpa því í sjónvarp í gegnum tæki á borð við Chromecast eða AppleTV.


HEIMA Í STOFU HJÁ ÞÉR Í BEINNI FRÁ GARÐARKIRKJU
MIÐVIKUDAGINN 23. DESEMBER kl. 20
MIÐASALA HEFST Á MÁNUDAGINN KL. 12
Auglýsing

læk

Instagram