Kvikmyndin Amma Hófí – Sjáðu fyrstu stikluna!

Kvikmyndin Amma Hófí verður frumsýnd í kvikmyndahúsum þann 10. júlí næstkomandi. Þetta kemur fram á klapptre.is

Með aðalhlutverk fara meðal annars þau Edda Björgvinsdóttir, Þórhallur Sigurðsson (Laddi), Sveppi, Steindi Jr, Víkingur Kristjánsson, Anna Svava Knútsdóttir og Pétur Jóhann.

Myndin fjallar um eldri borgararana Hófí (Edda Björgvinsdóttir) og Pétur (Laddi) sem eru olnbogabörn í kerfi sem hefur lítið gagn af þeim lengur. Þau eru orðin leið á aðbúnaðinum á elliheimilinu og ræna banka til að hafa efni á að kaupa sér litla íbúð.

Ýmis ljón eru í vegi þeirra og Hófí og Pétri lendir saman við harðasta handrukkara bæjarins og skósveina hans. Sem betur fer er erfitt að kenna gömlum hundum að sitja og Hófí og Pétur eru hörðustu glæpamenn elliheimilisins, þannig að þau eru ekkert á því að sitja að óþörfu.

Hér fyrir neðan má sjá fyrstu stikluna úr myndinni.

 

Auglýsing

læk

Instagram