Leitað er að íslenskri stúlku á Spáni – STÚLKAN ER FUNDIN! –

*Frétt uppfærð: STÚLKAN ER FUNDIN!

Hin átján ára gamla Thelma Líf Ingadóttir, sem búsett er á Spáni, gekk út af sjúkrahúsi í Alicante snemma í gærmorgun og hefur ekkert spurst til hennar síðan.

Talið er að hún hafi yfirgefið sjúkrahúsið um klukkan 5.30 um morguninn og skildi hún eigur sínar eftir, tösku með skilríkjum og síma.

„Ef ein­hver sér hana, ef ein­hver sér ein­hverja sem lík­ist henni, hafið sam­band við Policia Locale eða Guar­dia Civil sem allra fyrst, þeir vísa henni strax til mín. Þetta er óeðli­legt og hún skildi eft­ir meðal ann­ars mjólk og öll skil­ríki og sím­ann sinn á sjúkra­hús­inu og það var miði með síma­núm­er­inu mínu og síma­núm­eri móður henn­ar í tösk­unni þar sem allt dótið henn­ar er. Þannig náði sjúkra­húsið að hafa sam­band við okk­ur,“ sagði Ingi, faðir Thelmu, í samtali við DV

Auglýsing

læk

Instagram