Lögreglan lýsir eftir Arnari Sveinssyni

Lögreglan á Austurlandi lýsir eftir Arnari Sveinssyni, 32 ára karlmanni. Ekkert hefur spurst til hans síðan í september s.l. Arnar er um 185 sm. á hæð, grannvaxinn, rauðhærður og var með sítt hár, rautt skegg og gleraugu. Vitað er að hann fór til Þýskalands í ágúst s.l þar sem hann fór til Berlínar.
Ef einhver getur gefið upplýsingar um ferðir Arnars síðan í september er viðkomandi beðinn um að hafa samband við rannsóknardeild lögreglunnar á Austurlandi í síma 444-0650 eða netfangið: rannsoknaustur@logreglan.is.
Auglýsing

læk

Instagram