Nick Offerman með uppistand í Háskólabíói

Leikarinn, höfundurinn og trésmiðurinn Nick Offerman heldur uppistand í Háskólabíói 5. maí. Nick er best þekktur fyrir hlutverk sitt sem hinn óborganlegi Ron Swanson í hinum geysvinsælu grínþáttunum Parks & Recreation, sem Karl Weathers í verðlaunaseríunni Fargo og sem einn þáttastjórnenda Making It á NBC.

Hann hefur einnig skrifað fjórar metsölubækur sem trónuðu á New York Times metsölulistanum. Í frítíma sínum má finna hann í tréverkstæði í Los Angeles þar sem hann smíðar handgerða hluti eins og húsgögn, kanó og ukulele.

Nick Offerman er nú að túra um heiminn með nýju sýninguna sína, ALL RISE, en hann fór með hana til 37 borga um Bandaríkin árið 2019. Um er að ræða einstaka kvöldstund þar sem málin eru rædd og létt dansspor eru tekin sem fá þig til að flissa og hvetja þig til að upplifa betri hlið mannkynsins en þá sem við erum vön.

Miðasala hefst 20. febrúar kl. 10
– Póstlistaforsala hefst 19. febrúar kl. 10
– Miðaverð einungis 6.990 kr.
Auglýsing

læk

Instagram