Nýja kærastan hans Brad Pitt er sögð vera gift

Nýja kærastan hans Brad Pitt, hin 27 ára gamla Nicole Poturalski, er sögð vera gift kona.

Að sögn hefur hún verið í hjónabandi með hinum 68 ára veitingahúsaeiganda, Roland Mary, í átta ár og eiga þau sjö ára gamlan son. DailyMail greinir frá þessu.

,,Þau eru ennþá gift en þú gætir líst hjónabandi þeirra sem ,,opnu“,“segir heimildarmaður DailyMail.

,,Hann hefur verið í nokkrum hjónaböndum og á fimm börn. Hann hefur engan áhuga á neikvæðni og afbrýðisemi.“

Að sögn heimildarmanna hittust nýja parið einmitt fyrst á veitingastað Mary þegar Pitt var í Berlín að fylgja eftir kvikmyndinni Once Upon a Time in Hollywood, árið 2019.

View this post on Instagram

??

A post shared by Nico (@nico.potur) on

Auglýsing

læk

Instagram