Nýtt Matvælaráð Samtaka iðnaðarins

Nýtt Matvælaráð Samtaka iðnaðarins hefur verið sett á laggirnar.

Í ráðinu sitja Rannveig Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri Kötlu, sem er formaður ráðsins, Auðjón Guðmundsson, framkvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs Nóa Siríus, Gunnlaugur Karlsson, framkvæmdastjóri Sölufélags garðyrkjumanna, Sigurjón R. Rafnsson, aðstoðarkaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagfirðinga, Stefán Magnússon, markaðsstjóri CCEP á Íslandi, Sæmundur Sveinsson, fagstjóri Matvís, og Valmundur Pétur Árnason, framkvæmdastjóri Lostæti Austurlyst.

Matvælaráð SI er vettvangur umræðu um stöðu matvælaiðnaðar á Íslandi, greininga og margvíslegrar stefnumótunar ólíkra matvæla- og drykkjarframleiðenda innan Samtaka iðnaðarins.

Matvælaiðnaður á Íslandi skapar 4,6% landsframleiðslunnar sem eru ríflega 122 milljarðar króna og í greininni eru starfandi um 10.400 sem er 5% af heildarfjölda starfandi í landinu.

Matvælaráð SI áformar í haust að efna til umræðu um stöðu íslenskra matvælaframleiðenda, helstu áskoranir og tækifæri í atvinnugreininni.

Auglýsing

læk

Instagram