Öllu aflétt á miðnætti

Öllum takmörkunum innanlands, vegna Covid-19 faraldursins, verður aflétt á miðnætti í kvöld. Þetta kom fram á fundi ríkisstjórnarinnar nú fyrir stundu.

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, biður þó fólk um að fara varlega.

Auglýsing

„Það er stór dagur, ég finn það bara að það er dálítill hjartsláttur hjá mér, í glímunni við Covid-19,“ sagði hún á fundinum.

Frá og með miðnætti mega eins margir koma saman og fólk vill, engin grímuskylda og skemmtistaðir mega vera opnir til hálf fimm.

Sóttvarnaráðstafanir og skimanir verða þó áfram í gildi á landamærunum.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing