Pönnusteiktar risarækjur í cajun hunangs maríneringu

Hráefni:

  • 750 gr risarækjur
  • 1 1/2 msk cajun-krydd
  • svartur pipar
  • 2 msk ólívuolía
  • 4 msk smjör
  • 3-4 hvítlauksgeirar, rifnir niður
  • 1 msk ferskt timjan ( eða 2 tsk þurrkað )
  • rifinn börkur + safinn úr 1 sítrónu

Hunangs-chilli marínering:

  • 1/2 dl hunang
  • 2 msk smjör
  • 1 tsk cayenne pipar
  • 1/2 tsk chilli duft
  • 1/2 tsk reykt paprika
  • sjávarsalt

Aðferð:

1. Þerrið rækjurnar með eldhúspappír, setjið þær í skál ásamt cajun kryddi og svörtum pipar og blandið vel saman.

2. Hitið olíu á pönnu og steikið rækjurnar í um 2 mín á hvorri hlið. Bætið smjöri, hvítlauk, timjan og rifnum sítrónuberki á pönnuna. Steikið áfram í 1-2 mín. Takið pönnuna af hitanum og hrærið sítrónusafanum saman við.

3. Hunangs-chilli sósa: Bræðið saman í potti hunangi, smjöri, cayenne pipar, chilli dufti, reyktri papriku og smá salti.

2. Hellið sósunni yfir rækjurnar á pönnunni og berið fram strax.

Auglýsing

læk

Instagram