Sara Oskarsson opnar málverkasýninguna ‘Ratljós’

Sara Oskarsson opnar málverkasýninguna ‘Ratljós’ á milli klukkan 17:00 og 20:00 fimmtudaginn nk. að Laugavegi 74. 

Þar verða til sýnis um 40 málverk sem Sara hefur verið að mála síðan að faraldurinn tók heiminn heljargreipum. 
„Ég hef verið að mála að meðaltali 10 til 14 tíma á dag, oftast 7 daga vikunnar. Svo sterkur hefur drifkrafturinn verið og þörfin fyrir það að túlka þessa viðsjárverðu tíma á striga. Enda er það eitt af hlutverkum listarinnar að spegla tíðarandann hverju sinni og sögulega hefur myndlistin gengt jafnveigamiklu hlutverki í þeim efnum og td. ritlistin,” segir Sara.
Ferill Söru Oskarsson spannar 18 ár. Sara útskrifaðist með B.A. (Hons) gráðu með ágætiseinkunn frá einum virtasta listháskóla heims, Edinburgh College of Art í Skotlandi og hefur hún haldið fjölmargar einkasýningar.
Fjallað hefur m.a. verið um verk Söru í Telegraph í Bretlandi og á Arte.Tv í Frakklandi, Þýskalandi og Austur Evrópu.
Verk hennar hafa selst til listaverkasafnara um allan heim; meðal annars í Bretlandi, Írlandi, Frakklandi, Danmörku, Indlandi, Bandaríkjunum, Hollandi og Ástralíu. Verk eftir Söru var tilnefnt til Art Gemini Prize í Bretlandi árið 2013.

Málverkin eru framsetning listakonunnar og túlkun hennar á heiminum og veröldinni, bæði innri sem og ytri á tímum heimsfaralds.
ATH. Gætt verður að öllum tilmælum yfirvalda um fólksfjölda, hreinlæti og fjarlægðir á milli manna.
Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Léttar veitingar verða í boði.
Sýningin stendur út maí.
Hlekkur á opnun: https://www.facebook.com/events/671331590324314/

Auglýsing

læk

Instagram