Tilverur í Listasal Mosfellsbæjar

Nýtt sýningarár í Listasal Mosfellsbæjar hefst á sýningu Sindra PloderTilverurSindri er 23 ára gamall listamaður með Downs heilkenni. Hann hefur tekið þátt í fjölmörgum samsýningum og verkefnum þrátt fyrir ungan aldur en Tilverur er fyrsta einkasýning hans.

Sindri vinnur helst teikningar og tréskúlptúra og bera verkin sterk höfundareinkenni hans.  Myndefnið er aðallega portrett af verum sem eru ekki tilVerurnar eru ekki tröllekki nornirekki álfarekki skrímsliekki hauskúpur og ekki alls konaren eru samt fullar af einhverjuVið vitum aðeins  þær eru til í huga listamannsins og krefjast þess  brjótast út enda er Sindri síteiknandi á hvaða efnivið sem fyrir hendi er.

Fyrsti sýningardagur er föstudagurinn 8. janúar og sýningunni lýkur 5. febrúarEkki verður haldin sérstök opnun vegna Covid-19. Listasalur Mosfellsbæjar er staðsettur inn af Bókasafni Mosfellsbæjar, KjarnaÞverholti 2. Opið er kl. 12-18 virka daga og kl. 12-16 á laugardögum.

Auglýsing

læk

Instagram