today-is-a-good-day

„Sjáumst hress í fjallinu um helgina“

Stefnt er á að opna skíðasvæði Hlíðarfjalls á ný föstudaginn 16. apríl kl. 10:00. Þetta kemur fram á Facebook síðu skíðasvæðisins. En samkvæmt nýjustu reglum sóttvarnaryfirvalda mega skíðasvæði opna á ný fyrir 50% af hámarksfjölda gesta.

„Gæta þarf að tveggja metra reglu og er grímuskylda þar sem ekki er unnt að tryggja tveggja metra regluna. Þetta er eins og áður hefur verið hjá okkur, við upphaf lyftu, á salernum, í og við skíðahótel og skíðaleigu. Sjáumst hress í fjallinu um helgina!,“ segir í færslunni.

 

Auglýsing

læk

Instagram