Skemmti- og fjölskylduþátturinn Svara Bara verður í beinni útsendingu

Skemmti- og fjölskylduþátturinn Svara Bara verður í beinni útsendingu næsta laugardagskvöld, 11. apríl á Vísir.is og á Stöð 2 Vísi kl.21:00. Skemmtikraftarnir Hörður Bjarkason og Pétur Finnbogason munu stýra þættinum.

Í þættinum gefst áhorfendum kostur á að hringja inn og taka þannig þátt heima í stofu en áhorfendum verður gert erfitt fyrir að „gúggla“ svörin, með heldur frumlegum spurningum.

Markmið þáttarins er að sameina fólk heima í stofu og verður lifandi tónlist í þættinum ásamt líflegum uppákomum.

Þetta kemur fram á vef vísis

Auglýsing

læk

Instagram