today-is-a-good-day

Skimun á landamærum verður skylda frá og með deginum í dag

Skimun á landamærum verður skylda frá og með deginum í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu.

Í ljósi alvarlegrar stöðu faraldursins víða um heiminn verður núverandi fyrirkomulag sóttvarna á landamærunum með tvöfaldri skimun og fimm daga sóttkví á milli framlengt til 1. maí. Þá verða tekin varfærin skref til afléttingar sem taka munu mið af ástandi faraldursins á brottfararstað komufarþega. Ríkisstjórnin tók þessa ákvörðun á fundi í morgun.

„Það er sérlega brýnt nú að stemma stigu við slíku vegna þeirrar fyrirsjáanlegu og afmörkuðu hættu sem stafar af nýju afbrigði veirunnar sem ítrekað hefur greinst hjá sýktum einstaklingum á landamærum. Gjaldfrjáls skimun hefur ekki leitt til þess að fækkað hafi nægjanlega í hópi þeirra sem velja 14 daga sóttkví í stað skimunar. Heilbrigðisráðherra hefur því ákveðið að setja reglugerð þar sem sýnataka verður gerð að skyldu. Ekki verður hægt að velja sóttkví í stað sýnatöku nema í algerum undantekningartilvikum, s.s. af læknisfræðilegum ástæðum,“ segir í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu.

„Vonir standa til þess að á næstu mánuðum muni bólusetning smám saman draga úr þeirri hættu sem af faraldrinum stafar samhliða því sem sóttvarnaaðgerðum ríkja verður áfram beitt til að sporna gegn útbreiðslu veirunnar. Því verður fyrirkomulag sóttvarna á landamærum endurskoðað, mánaðarlega, og þá einkum til rýmkunar, eftir því sem aðstæður leyfa.“

Auglýsing

læk

Instagram