Skrifaði bók um mannshvörf á Íslandi eftir vinnuslys

Í byrjun nóvember næstkomandi kemur út á vegum Óðinsauga bókin Saknað – íslensk mannshvörf eftir Bjarka H. Hall.

Bókin hefur að geyma 31 ýtarlega kafla um mannshvörf á Íslandi og Íslendinga sem horfið hafa erlendis. Einnig er að finna styttri umfjallanir um flest þau mannshvörf sem höfundi er kunnugt um á árunum 1920-2019. Ritun þessa verks hefur tekið á en óhætt er að segja að við hverja eina spurning sem maður finnur svar við í þessum málflokki vakna sennilega um tíu aðrar í staðinn.

Upphaf þess að ráðist var í ritun þessara bókar má rekja til slyss sem höfundur bókarinnar lenti í árið 2017. Varð hann óvinnufær um tíma, en öllu jafna starfar hann sem vinnuvélastjórandi hjá verktakafyrirtækinu Ístak. Til að hafa ofan af fyrir sér meðan bata væri náð hóf hann að safna saman upplýsingum um mannshvörf og stofnaði síðuna „Íslensk mannshvörf“ á Facebook og vefsíðuna www.mannshvorf.is þar sem fjallað hefur verið um málaflokkinn á eins heiðarlegann hátt og unnt er en þó reynt að sýna ýtrustu nærgætni. Í kjölfar fjölda áskoranna um að ráðast í gerð bókar var fátt annað að gera en taka slaginn.

Talsvert af ábendingum hefur borist og enn er tekið við ábendingum á tölvupóstfangið mannshvarf@gmail.com þó svo að útgáfa bókarinnar sé handan við hornið. Fullum trúnaði er heitið

Auglýsing

læk

Instagram