Sölvi og Nadi leika öll hlutverkin í „raunveruleikaþáttunum“ Love stronger then Quarantine

Einkaþjálfarinn, heilsuráðgjafinn og leikarinn Sölvi Fannar býr í Englandi ásamt kærustu sinni Nadi Fadina. Þau hafa undanfarið verið að dunda sér við að búa til heimagert raunveruleikaþáttagrín sem þau deila á YouTube.

„Þættirnir eru bókstaflega heimatilbúin skopstæling af raunveruleikaþáttaforminu,“ segir Sölvi Fannar í samtali við Fréttablaðið

„Eins og hjá flestum þá hefur hægst verulega á flestu sem við vorum að vinna við og einangrunin var farin að sverfa að en í stað þess að gefast upp fyrir neikvæðum áhrifum ákváðum við að gera eitthvað saman,“ segir Sölvi en fyrsti þátturinn kom inn á YouTube.com/solvifannar í gær.

Auglýsing

læk

Instagram