Spider-Man: No Way Home heldur áfram að slá met!

Spider-Man No Way Home hefur setið í toppsæti aðsóknarlista kvikmynda í kvikmyndahúsum allar 7 vikurnar sem hún hefur verið í bíó. Um 60.000 manns hafa nú farið að sjá myndina í kvikmyndahúsum á Íslandi.

Myndin var frumsýnd þann 17. desember sl. og sló þá met með tekjuhæstu opnunarhelgi allra tíma á Íslandi. Engin mynd hefur setið jafn lengi á toppsæti aðsóknarlista á Íslandi.

Myndin hefur fengið frábæra dóma og mikið lof gagnrýnanda sem og áhorfanda og er áfram í sýningum í öllum helstu kvikmyndahúsum landsins.

Auglýsing

læk

Instagram