Stelpur í Menntaskólanum á Akureyri senda frá sér djammlag

StemMA, stelpumyndbandafélag í Menntaskólanum á Akureyri sendi frá sér sitt fyrsta lag á dögunum. Þetta kemur fram á Kaffið.is.

Í Menntaskólanum á Akureyri hefur lengi tíðkast að reka myndbandafélög en StemMA hefur ekki verið virkt félag undandarin ár. Þær Berglind Halla Þórðardóttir, Bjartey Unnur Stefánsdóttir,Elísabet Kristjánsdóttir, Guðný Eva Björnsdóttir, Guðrún Birna Örvarsdóttir, Hugrún Lív Magnúsdóttir, Karen Birta Pálsdóttir Maitsland, Lovísa Marý, Magnea Vignisdóttir og Rakel Reynisdóttir ákváðu að endurvekja félagið á þessu skólaári og hafa sent frá sér sketsa í vetur.

„Það tíðkast að það séu myndbandafélög í MA en StemMA hefur alltaf horfið einhvernveginn, síðasta skólaár voru tvö myndbandafélög sem voru bara strákar en maður sá varla neitt af neinu stelpu myndbandafélagi eða StemMA,“ segir Elísabet í samtali við Kaffið.

StemMA sendi svo frá sér sitt fyrsta lag á árshátíð skólans í síðustu viku. Lagið heitir Sleppa takinu og hefur slegið í gegn innan veggja skólans.

„Lagið er í rauninni bara mjög týpískt „djammlag“ nema það höfðar kannski meira til stelpna en önnur týpísk lög sem til dæmis Séra Bjössi, Clubdub, 101 Boys og Kop boys en það er vert að nefna að það eru engar stelpur þarna.“

Auglýsing

læk

Instagram