today-is-a-good-day

Stöðvaðir á tvöföldum hámarkshraða í Ártúnsbrekku

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði tvo ökumenn í Ártúnsbrekku rétt fyrir klukkan tvö í nótt. Mældust þeir á 157 kílómetra hraða, eða nærri tvöföldum hámarkshraða. Ökumennirnir viðurkenndu að hafa verið í spyrnu.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Þar kemur einnig fram að ökumaðurinn sem „tapaði“ spyrnunni hafi ekki gengst við því að hafa náð þeim hraða er fyrr segir.
Auglýsing

læk

Instagram