Þjóðhátíðarlagið í ár – Göngum í takt eftir Hreim – Sjáðu myndbandið!

Þjóðhátíðarlagið í ár ber heitið „Göngum í takt“ og fjallar um eftirvæntinguna sem kraumar inn í manni þegar að maður er að labba niður í dal, gegnum hliðið og heyrir í drununum úr brekkunni þegar að þúsundir fólks hafa þjappað sér saman og hátíðin er byrjuð.

Hreimur Örn fékk Vigni Snæ Vigfússon með sér í að pródúsera lagið. Magni, sem söng með Hreim árið 2001 í Þjóðhátíðarlaginu Lífið er yndislegt, verður einnig með að þessu sinni ásamt Emblu Margréti 16 ára dóttur Hreims sem syngur einnig í laginu.

Benedikt Brynleifsson spilar á trommur, Matthías Stefánsson á fiðlu, Pálmi Sigurhjartarson á harmonikku og Árni Þór Guðjónsson, Steini Bjarka, Benedikt Brynleifs og Vignir Snær mynda kórinn
Lag & Texti : Hreimur Örn Heimisson
Forsala á Þjóðhátíð í Eyjum fór af stað með miklum látum í vikunni / Miðasala: https://dalurinn.is/

Auglýsing

læk

Instagram