Þjóð­há­tíðar­lagið Takk fyrir mig kemur út í dag

Þjóðhátíðarlagið í ár, Takk fyrir mig, kemur út í dag. En það var Ingó Veðurguð sem var fenginn til að semja lagið, áður en það kom í ljós að ekkert yrði úr þjóðhátíð í ár. Sem stendur er leyfilegur fjöldi á samkomum 500 manns en alla jafna mæta um 20 þúsund manns á þjóhátíð og var því ákveðið að slá hátíðina af þetta árið.

„Það var búið að biðja mig að gera lagið áður en ÍBV neyddist til að taka þessa á­kvörðun. Síðan urðum við hins vegar að á­kveða hvort við vildum þá gefa lagið út. Okkur fannst ein­hver rómantík fólgin í því að gera það, sér­stak­lega þar sem textinn smell­passar ó­vænt við á­standið,“ segir hann í samtali við Fréttablaðið

„Lagið heitir Takk fyrir mig og hefur verið að púslast saman í yfir nokkuð langan tíma, sem er mjög ó­vana­legt fyrir mig. Það mætti í raun segja að lagið hafi nokkurn veginn bara gerst. Bróðir minn samdi svo hluta af því,“ segir Ingó.

„Það að spila það í dalnum gerir svo­lítið lagið að lagi, þannig það er frekar leitt að fá ekki að spila það núna í Eyjum. En sem betur fer mun ég fá mitt tæki­færi til að flytja það þar á næsta ári,“ segir hann.

Ingó hefur í nógu að snúast þessa dagana og er full bókaður á skemmtunum víðs vegar um landið um verslunarmannhelgina.

Auglýsing

læk

Instagram