today-is-a-good-day

Þrefaldur næst!

Lottópotturinn verður þrefaldur í næstu viku þar sem enginn var með allar tölurnar réttar að þessu sinni. Þrír miðaeigendur voru með bónusvinninginn og fær hver þeirra 169.490 krónur í sinn hlut. Miðarnir eru allir í áskrift.

Sjö miðahafar voru með 2. vinning í Jóker og fá 100 þúsund krónur hver. Miðarnir voru keyptir í Krambúðinni á Selfossi, Mini market í Hafnarfirði, Kvikk á Bústaðavegi, Gullnesti v/Gylfaflöt í Reykjavík, tveir eru í áskrift og einn var keyptur á lotto.is.

Auglýsing

læk

Instagram