Þrír miðahafar skiptu með sér bónusvinningnum

Enginn var með allar tölur réttar í lottó útdrætti vikunnar og verður potturinn því þrefaldur í næstu viku. Þrír miðahafar skiptu með sér bónusvinningnum og hlýtur hver þeirra rúmar 274 þúsund krónur. Miðarnir voru allir keyptir á heimasíðu lotto.is

Þrír miðahafar voru með fjórar tölur réttar í réttri röð og hlýtur hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir í Tvistinum á Faxastíg 36 í Vestmannaeyjum, N1 á Hringbraut í Reykjavík og þriðji miðinn var í áskrift.

Auglýsing

læk

Instagram