Þurfti að fara á 3 bankareikninga til að finna 500 krónur – Seldi 352 þúsund borgara fyrsta árið

Tómas Andrés Tómasson er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggvasonar. Tómas, sem er betur þekktur sem Tommi á Búllunni, er fyrir löngu orðin goðsögn í íslensku viðskipta- og veitingalífi. Í þættinum segir Tommi meðal annars frá því þegar hann smakkaði hamborgara í fyrsta sinn.

,,Ég fékk minn fyrsta hamborgara í Ísborg, sem var svona lítil búlla niður í Austurstræti. Ég var 14 ára gamall og ég man að það var bara eins og himnarnir opnuðust. Og franskar kartöflur, ég hafði aldrei smakkað annað eins og þetta var ást við fyrstu smökkun.“

Þó að Tommi hafi í gegnum tíðina afrekað ótrúlega hluti var leiðin alls ekki alltaf slétt og felld og Tommi segist hafa verið nálægt því að glata öllum sínum tækifærum vegna drykkju.

,,Ég byrjaði mjög snemma að drekka, þegar ég var 13 ára gamall og þá opnuðust himnarnir eina ferðina enn. Ég drakk alltaf til að vera fullur og það fór mér illa að drekka. En ég fór að læra kokkinn og maður komst upp með að drekka þar. Ég hætti svo en byrjaði aftur og þegar ég kom heim frá Bandaríkjunum átti ég erfitt með að fá vinnu af því að það hafði spurst út að ég væri drykkfelldur. Ég hætti ekki, en var svo heppinn að þáverandi konan mín sagði við mig á einhverjum punkti:

,,Annað hvort hættir þú að drekka vinur eða ég skil við þig.“

„Það er engin lygi að mig langaði mest að skilja við hana og halda áfram að drekka en ég vildi ekki tapa ,,djobbinu“, þannig að ég tók mig til og drakk ekkert í 3 ár og það var dásamlegur tími. Þessi ár, sem voru í Grindavík, voru á margan hátt mín skemmtilegustu og bestu ár.“

Tommi hefur verið samofin íslenskri matarmenningu í nærri 50 ár eða allt frá því hann seldi meira en 300 þúsund hamborgara á einu ári eftir stofnun Tommaborgara.

,,Ég innréttaði 12 fermetra skrifstofu og þar bjuggum við Helga, þáverandi konan mín, í átta mánuði. Á næturna var þetta svefnherbergið okkar en á daginn skrifstofa. Þegar við opnuðum Tommaborgara árið 1981 kostaði Tommaborgari án osts 22 krónur en með osti 25 krónur. Frönskurnar kostuðu 6 krónur og gosið 4, 6 eða 8 krónur eftir því hvað glasið var stórt. Þegar við opnuðum man ég að fólki fannst þetta frekar ódýrt og þetta gekk lygilega vel. Á fimm vikum var ég kominn í að selja þúsund hamborgara á dag og staðurinn borgaði sig niður á 3 mánuðum. Staðurinn tók ekki marga og fólk beið stundum meira en klukkutíma bara til að taka með sér tvo hamborgara heim. Það var eins og fólk hefði aldrei fengið mat áður og við seldum 352 þúsund hamborgara fyrsta árið eftir að við opnuðum.“ 

Tommi hafði Rekið Hard Rock Cafe, Hótel borg og marga fleiri staði þegar hann hugðist fara að setjast í helgan stein upp úr aldamótum en áttaði sig fljótt á því að staðan væri ekki alveg nógu góð.

,,Ég seldi Borgina 2001 og hélt ég gæti borgað skuldir mínar, átt afgang og farið að að hugsa til þess að verða ,,grand old man“, en ég skuldaði meira en ég hélt og átti minna en ég átti von á og var miklu blankari en ég hélt. Ég notaði alltaf tvo eyrnapinna eftir sturtu á morgnana en ég var orðinn svo blankur þarna að ég tímdi bara að nota einn. En það sem vakti mig til lífsins var þegar ég þurfti að kaupa fyrirframgreitt símkort árið 2003. Ég þurfti að fara inn á 3 bankareikninga til að skrapa saman 500 kall. Þá áttaði ég mig á því að ég yrði að gera eitthvað í mínum málum. Þetta var í raun upphafið að því að ég stofnaði Búlluna. Þetta var þvílíkt sjokk og niðurlæging. Að Tommi á Hard Rock og Borginni ætti ekki einu sinni 500 kall til að setja inn á símann sinn. En þegar hugmyndin kom um að fara aftur að steikja hamborgara fannst mér það nánast niðurlægjandi. Það var tímabil sem átti að vera búið. En svo fór fólk að tala um það að Tommi væri aftur að byrja með hamborgarastað og smám saman sá ég að það gæti verið besti kosturinn í stöðunni.“ 

Eins og þekkt er orðið gekk Hamborgarabúllan strax mjög vel og áður en langt um leið var búið að opna Búlluna í London og þar varð fljótt mikið að gera líka.

,,Einn daginn sáum við það svo að David Beckham var mættur á staðinn til að fá sér hamborgara. Hann var bara í úlpu með sixpensara og strákinn sinn með sér og allt í einu tekur einhver eftir því að hann er þarna og það er fólk sem biður um myndir af sér með honum og þá eigum við myndir af honum inni á staðnum og svo kom hann nokkrum sinnum eftir þetta. Svo opnuðum við á King´s Road og ég veit ekki hvernig á því stóð að þau hjónin leigðu þann stað tvisvar sinnum til að halda afmælisveislu fyrir börnin sín. Þau voru bara þarna eins og hjón úr breiðholtinu að passa barnaskarann. Við sögðum engum frá þessu en þetta spurðist út. Og ég segi það núna að ég hefði frekar viljað fá Beckham í heimsókn á staðinn heldur en Bretaprins. Það er öllum vel við Beckham úti um allan heim og allir vilja tengjast honum.“

Tommi er í mjög góðu líkamlegu formi og hefur æft mjög reglulega í 40 ár. Hann þakkar Bubba Morthens fyrir það.

,,Þegar ég fór á Rokk-,,showið“ á Broadway 1981 og sá Bubba beran að ofan varð vendipunktur. Hann hljóp um sviðið allur skorinn og vöðvastæltur. Ég fer heim, á þeim tíma þegar ég bjó á skrifstofunni á Tommaborgurum, og horfði í spegilinn og mig langaði að fara að gráta. Ég var svo illa á mig kominn. Þarna byrjaði ég að æfa. Skömmu síðar var ég kominn til Kaliforníu og þá æfði ég í Gold´s Gym. Ég hef æft mjög reglulega alveg síðan. Ef að Bubbi hefði ekki verið þarna ber að ofan hefði ég ekki fengið þessa bakteríu og ég hef oft þakkað Bubba fyrir að ég hafi haldið mér í góðu formi í öll þessi ár.“

Í þættinum fara Sölvi og Tommi yfir lygilegan feril Tómasar, sem spannar allt frá 22 króna hamborgurum á Tommaborgurumyfir í eignarhald á Hard Rock, Búllunni í London og ótal fleiri hluti.

Þáttinn í heild má sjá hér að neðan:

Auglýsing

læk

Instagram