today-is-a-good-day

Tíu manna fjöldatakmörkun frá miðnætti

Stórhertar sóttvarnaaðgerðir taka gildi á miðnætti í kvöld.

Tíu manna fjöldatakmörkun verður meginregla og aðeins börn fædd 2015 og síðar verða þar undanskilin. Grunn-, framhalds-, tónlistar- og háskólum verður lokað þar til páskafrí tekur við. Margvísleg starfsemi sem rúmast ekki innan reglu um 10 manna fjöldatakmörkun verður stöðvuð. Ákvörðun heilbrigðisráðherra um hertar sóttvarnaaðgerðir byggist á tillögum sóttvarnalæknis um að grípa tafarlaust til ráðstafana vegna hópsýkinga innanlands að undanförnu til að sporna gegn frekari útbreiðslu veirunnar. Hertar reglur munu gilda í 3 vikur.

Helstu reglur sem taka gildi á miðnætti:

  • Almennar fjöldatakmarkanir 10 manns og ná til allra sem fæddir eru 2014 eða fyrr.
  • Trú- og lífsskoðunarfélög mega taka á móti 30 gestum við athafnir. Þeir skulu skráðir með nafni, kennitölu og símanúmeri en þurfa ekki að sitja í númeruðum sætum. Gestum er skylt að nota andlitsgrímur og tryggja skal 2 metra regluna. Hámarksfjöldi í erfidrykkjum, fermingarveislum og sambærilegum viðburðum er 10 manns.
  • Sund- og baðstaðir lokaðir.
  • Heilsu- og líkamsræktarstöðvar lokaðar.
  • Íþróttir inni og úti, jafnt barna og fullorðinna, sem krefjast meiri nálægðar en 2 metra eða þar sem hætta er á snertismiti vegna sameiginlegs búnaðar, eru óheimilar.
  • Sviðslistir og sambærileg starfsemi, svo sem bíó, er óheimil.
  • Skemmtistaðir, krár, spilasalir og spilakassar lokaðir.
  • Ökunám og flugnám með kennara óheimilt.
  • Veitingastaðir mega hafa opið til kl. 22, með að hámarki 20 gesti í rými sem allir skulu skráðir og fá afgreiðslu í sæti sem eru númeruð. Vínveitingar skal bera til sitjandi viðskiptavina. Heimilt er að taka á móti nýjum gestum til kl. 21.00.
  • Verslanir mega taka á móti 5 einstaklingum á hverja 10 m2 að hámarki 50 manns. 20 starfsmenn mega vera í sama rými og viðskiptavinir. Tveggja metra nándarregla og grímuskylda.
  • Starfsemi hársnyrtistofa, snyrtistofa og sambærileg starfsemi verður áfram heimil.
Auglýsing

læk

Instagram