TÓNATAL – Lyftum hulunni af tónlistariðnaðinum

Tónatal er fræðsluverkefni tónlistarsamfélagsins á Íslandi sem miðar að því að auka þekkingu tónlistarfólks, og annara sem starfa við tónlist, á stuðningsumhverfi sínu og tækifærum. Áfallið sem  tónlistarsamfélagið varð fyrir vegna Covid-19 varð aflvakinn að Tónatali sem tekur saman mikið af upplýsingum til að sem flestir geti aflað sér fræðslu og aukið skilning sinn á tónlistariðnaðinum.

Nútíma tónlistarfólk er líklegra en nokkru sinni fyrr að finna sig í tvíþættu hlutverki listamanns og frumkvöðuls. Tónatal fyllir upp í þörfina fyrir aukna þekkingu og kunnáttu í tónlistarbransanum með því að safna saman upplýsingum sem eru miðaðar jafnt að byrjendum sem hafa litla eða enga þekkingu á greininni, til þeirra sem eru lengra komnir og líka reynslumikilla aðila sem eru að leitast við að auka þekkingu sína. Þetta er gert með auðskiljanlegum myndböndum og hlaðvörpum ásamt ýmsu fleira ýtarefni, sem mun hjálpa þeim að öðlast kunnáttuna sem þarf, til þess að þróa feril sinn frekar.

Viðburður verður haldinn þriðjudaginn 11. ágúst, 17:00 á Loft Hostel. Þar verður pallborð með Guðrúnu Björk Bjarnadóttur (STEF), Maríu Rut Reynisdóttur (Tónlistarborgin Reykjavík) og Sigtryggi Baldurssyni (ÚTÓN), stjórnað af söngkonunni Hildi Kristínu Stefánsdóttur um fræðslu og innsýn í tónlistargeirann.

Frá og með 11. ágúst verður birt hlaðvarpið „Bransakjaftæði“ á Spotify og Apple Podcasts, sem er gert í samvinnu við Útvarp 101. Auk þess verða stutt myndbönd birt með listamönnunum GDRN og Loga Pedro þar sem þau velta fyrir sér ólíkum þáttum tónlistargeirans.

Þeir sem hafa áhuga geta fylgst með verkefninu á tonatal.is og skráð sig á póstlistann til að fá tilkynningu þegar nýtt fræðsluefni er birt. Það er líka hægt að vera með í Facebook hópnum og taka þátt í umræðum þar. Tónatal er samvinnuverkefni ÚTÓN, Tónlistarborgarinnar Reykjavíkur, STEF, SFH og Íslandsstofu.

Auglýsing

læk

Instagram