Tónlistarmaðurinn Auður kom fram á dönskum jólatónleikum

Tónlistarmaðurinn Auður kom fram á árlegum jólatónleikum danska Ríkisútvarpsins, DR1, sem sýndir voru í gær. Þar flutti hann lagið Það snjóar sem Sigurður Guðmundsson og Memfismafían gerðu frægt um árið.

Í viðtali sagðist Auður ekki vera mikið jólabarn og tengja við boðskap lagsins sem kemur inn á einmanaleika yfir jólahátíðina. Þess má geta að Auður tók einnig sama lag á jólatónleikum Björgvins Halldórssonar í gær.

Upptöku danska sjónvarpsins má finna með því að smella hér en flutningur okkar manns hefst á 1:03.

Þetta kom fram á k100.mbl.is.

Auglýsing

læk

Instagram