Tveir miðahafar voru með 2. vinning í Jóker

Enginn var með 1. vinning í EuroJackpot í kvöld og flyst því vinningsupphæðin yfir á 1. vinning í næstu viku. 7 miðahafar skiptu með sér 2. vinningi og hlýtur hver þeirra rúmar 44,4 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir í Danmörku, Noregi, þrír í Þýskalandi og tveir í Svíþjóð. Fjórir miðahafar skiptu svo með sér 3. vinningi og fær hver þeirra rúmlega 27,4 milljónir króna í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Þýskalandi, Noregi, Ítalíu og Finnlandi.

Tveir miðahafar voru með 2. vinning í Jóker og fá þeir 100 þúsund krónur í vinning hvor. Annar miðinn var keyptur á heimasíðunni lotto.is og hinn miðinn var í áskrift.

Heildarfjöldi vinninga á Íslandi var 4.295.

Auglýsing

læk

Instagram