Valdimar og Örn Eldjárn á tónleikaferð um landið

Tónlistarmennirnir Valdimar Guðmundsson og Örn Eldjárn leggja land undir fót í júní þar sem þeir munu heimsækja vel valda staði í öllum landshlutum. Þetta kemur fram á vef tix.is

Dagsskráin samanstendur af ljúfum tónum úr öllum áttum, þeirra uppáhaldslög í bland við aðrar tónlistarperlur.

Stað- og dagsetningar:

13. júní – Paddy´s Keflavík
14. júní – Röntgen Reykjavík
15. júní – Midgard Basecamp Hvolsvöllur
16. júní – Hafið Höfn
17. júní – Havarí Berufjörður
18. júní – Beituskúrinn Neskaupsstaður
19. júní – Gamli Baukur Húsavík
20. júní – Græni Hatturinn – kaupa miða HÉR
21. júní – Menningarhúsið Dalvík
22. júní – Grána Sauðárkrókur
23. júní – Vagninn Flateyri
25. júní – Skrímslasetrið Bíldudalur
26. júní – Flak Pareksfjörður – FRÍTT INN

Miðasala á tix.is og við hurð.

Auglýsing

læk

Instagram