Viðurkenningar á norrænni ljósmyndasýningu í Hörpu

Í tilefni 95 ára afmælis Ljósmyndarafélags Íslands var opnuð norræn ljósmyndasýning á fyrstu hæð í Hörpu síðastliðinn föstudag. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, opnaði sýninguna með formlegum hætti auk þess að veita fjórum íslenskum verðlaunahöfum sem eiga myndir á sýningunni viðurkenningar.

Eftirtaldir ljósmyndarar hlutu viðurkenningu:

  • Heida HB í flokki landslagsmynda.
  • Sigurður Ólafur Sigurðsson í flokka frétta- og heimildamynda.
  • Aldís Pálsdóttir í flokki auglýsingamynda.
  • Aldís Pálsdóttir í flokki portrettmynda.

Aðrir ljósmyndarar sem eiga mynd á sýningunni eru Agnes Heiða Skúladóttir, Bragi Kort, Heiðdís Guðbjörg Gunnarsdóttir , Íris Stefánsdóttir og Linda Ólafsdóttir.

Á sýningunni eru 45 verðlaunamyndir frá Íslandi, Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. Efnt var  til samkeppni félaga atvinnuljósmyndara í hverju landi. Í dómnefnd fyrir íslensku myndirnar sátu Tony Sweet frá Bandaríkjunum, Gabe McClintock frá Kanada og Line Loholt frá Noregi. Íslensku myndirnar eru frá 8 atvinnuljósmyndurum.

Sýningin sem er opin almenningi á opnunartíma Hörpu stendur fram til fimmtudagsins 3. mars.

Auglýsing

læk

Instagram