today-is-a-good-day

Yfir níu þúsund miðar hafa selst á söng­leikinn Níu líf

„Við þökkum kær­lega fyrir frá­bærar við­tökur. Við erum svo sannar­lega í skýjunum yfir þeim,“ segir Kristín Eysteinsdóttir, leikhússtjóri Borgarleikhússins, í fréttatilkynningu frá Borgarleikhúsinu.

Miðasala á söngleikinn Níu Líf hófst á laugar­daginn síðast­liðinn og í liðinni viku var fyrsta tón­dæmið úr sýningunni frum­flutt þegar ný út­gáfa af einu vin­sælasta lagi Bubba, Rómeó og Júlía, var gefið út. Sjá hér: Aron Mola og Rakel flytja lagið Rómeó og Júlía

Yfir níu þúsund miðar hafa selst á söng­leikinn, sem fjallar um söng­varann Bubba Morthens, og segir segir Kristín þennan gífur­lega á­huga fólks á sýningunni gefa öllum hópnum aukinn kraft.

Þetta kom fram á vef Fréttablaðsins

Auglýsing

læk

Instagram