Kryddpíurnar komu allar saman í afmæli Victoríu Beckham og tóku lagið!

Langþráður draumur margra aðdáenda hljómsveitarinnar rættist á laugardaginn þegar knattspyrnukappinn David Beckham birti myndband á Instagram síðu sinni þar sem allar fimm Kryddpíurnar voru mættar í afmæli Victoríu Beckham, sem er ein af meðlimum hljómsveitarinnar.

Þær Emma, Victoría, Mel B, Mel C og Geri létu sér þó nægja að dansa og þykjast syngja með laginu en atvikið hefur engu að síður vakið mikla athygli og kátínu hjá aðdáendum.

Mörg ár eru síðan þær komu fram saman síðast en fjórir meðlimir sveitarinnar fóru í tónleikaferðalag um Evrópu 2019 en það var þó án Victoríu, sem fagnaði 50 ára afmæli sínu um helgina.

Victoría sagði að þetta hefði verið besta kvöld lífs síns og fjöldi aðdáenda hefur krafist þess að þær komi saman og spili á Glastonbury tónlistarhátíðinni.

Því miður er ekkert sem bendir til að þessi heimsfræga hljómsveit stefni á alvöru endurkomu svo aðdáendur verða að láta sér þetta nægja að svo stöddu.

Hægt er að horfa á myndbandið hér fyrir neðan

 

 

Auglýsing

læk

Instagram