Auglýsing

Lögreglan á Suðurnesjum með óvenjulega beiðni til íbúa vegna eldgossins

Lögreglan á Suðurnesjum setti fram óvenjulega beiðni til íbúa á Facebook síðu lögreglunnar í gærkvöldi.

Þar eru íbúar beðnir um að spara alls ekki heita vatnið og í raun reyna að nota sem mest af því þar sem það veldur því að þannig helst góður þrýstingur á lögninni.

Lögreglan segir ástæðuna vera að lögnin sé grafin í jörðu og með þessu standi vonir til að vel takist að kæla lögnina ef til þess kemur.

Þannig séu auknar líkur á að hún haldi ef hraun flæðir yfir hana.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing