Alda Dís, Elísabet Ormslev, Þórdís Birna og Guðmundur Snorri komust áfram

Lagið Augnablik með Öldu Dís, Á ný með Elísabetu Ormslev og Spring yfir heiminn með Þórdísi Birnu Borgarsdóttur og Guðmundi Snorra Sigurðarsyni komust áfram í forkeppni Eurovision í kvöld.

Seinna undanúrslitakvöld Eurovision fór fram í kvöld þegar sex lög voru flutt í beinni útsendingu í Háskólabíói. Úrslitin fara fram í Laugardalshöll 20. febrúar.

Í síðustu viku komust Raddirnar með Gretu Salóme, Óstöðvandi með Karlottu Sigurðardóttur og Hugur minn er sem Erna Hrönn Ólafsdóttir og Hjörtur Traustason fluttu áfram.

Sjá einnig: Twitter var á yfirsnúningi þegar forkeppni Eurovision hélt áfram, hér eru nokkur tíst

Auglýsing

læk

Instagram