Andri Snær býður sig fram til embættis forseta Íslands

Andri Snær Magnason rithöfundur hyggst bjóða sig fram til forseta Íslands. Þetta kemur fram á vef RÚV.

Á vef RÚV kemur fram að Andri Snær hafi boðað til opins fundar í Þjóðleikhúsinu klukkan fimm á morgun og að heimildir fréttastofu hermi að þar muni hann tilkynna um framboð sitt til embættis forseta Íslands.

Andri Snær hefur lengi verið orðaður við framboð og virðist nú hafa tekið ákvörðun.

Auglýsing

læk

Instagram