Beyoncé á von á tvíburum og hún tilkynnti það með stórkostlegri mynd á Instagram

Tónlistarkonan Beyoncé Knowles á von á tvíburum ásamt eiginmanni sínum, rapparanum Jay-Z. Beyoncé tilkynnti þetta á Instagram rétt í þessu.

Sjá einnig: Beyoncé birtir fullt af myndum frá Íslandi

„Við viljum deila með ykkur ást okkar og hamingju,“ sagði Beyoncé.

Við höfum notið blessunar í annað skipti. Fjölskylda okkar er að stækka um tvö og fyrir það erum við ótrúlega þakklát og við þökkum ykkur fyrir heillóskirnar.

Fyrir eiga þau dótturina Blue Ivy Carter.

Auglýsing

læk

Instagram