Segir bótakerfið vera segul fyrir innflytjendur

Lárus Guðmundsson, fyrrverandi knattspyrnumaður og oddviti Miðflokksins í Garðabæ, var gestur í Spjallinu með Frosta Logasyni. Í viðtalinu gagnrýnir Lárus núverandi stefnu í útlendingamálum og rekstri sveitarfélaga.

Varar við auknum kostnaði fyrir sveitarfélög

Lárus segir samning Garðabæjar um samræmda móttöku flóttamanna vera of kostnaðarsaman og varar við því að sveitarfélagið geti lent í fjárhagsvandræðum. Samkvæmt honum geti allt að hundrað einstaklingar komið til bæjarins árlega á grundvelli samningsins.

Auglýsing

Hann heldur því fram að auk grunnframfærslu fylgi ýmsar viðbótargreiðslur og segir að upphæðir geti numið að minnsta kosti um 100.000 krónum á mánuði á hvern einstakling, þó hann taki sérstaklega fram að hann hafi ekki nákvæmar tölur.

„Við munum lenda í því að bótakerfið verður segull,“ segir Lárus og bætir við að slíkt geti hvatt fólk til að sækjast eftir bótum og opinberu húsnæði.

Segir kostnaðinn lenda á almenningi

Í viðtalinu hafnar hann því að kostnaðurinn sé eingöngu á herðum ríkisins. „Ríkið er ekkert botnlaus sjóður. Þetta kemur úr vösum okkar allra,“ segir hann.

Hann bendir einnig á reglur innan Evrópska efnahagssvæðisins sem geri fólki kleift að fá atvinnuleysisbætur á Íslandi eftir skamman tíma í vinnu, ef viðkomandi hafi starfað erlendis áður.

Hefur áhyggjur af þróun í Evrópu

Lárus nefnir svo þróun í Þýskalandi og segir að þar hafi stór hluti innflytjenda farið á bætur í staðinn fyrir að fara út á vinnumarkað. Hann heldur því einnig fram að samfélagsleg vandamál hafi aukist.

Hann segir að þetta geti orðið möguleg þróun á Íslandi ef ekki verði gripið til aðgerða.

Vill breytingar í skólakerfinu

Lárus gagnrýnir einnig skóla án aðgreiningar og segir Miðflokkinn vilja taka upp aftur stuðningsdeildir og sérkennslu. Hann telur að nemendur sem nái ekki að fylgja kennslumarkmiðum eigi ekki að vera í almennum bekkjum.

Einnig segist Lárus vera andvígur Borgarlínu og telur að fjármunum sé betur varið í að styrkja hefðbundnar almenningssamgöngur. Hann gagnrýnir einnig þátttöku Garðabæjar í samgöngusáttmálanum og bendir á að bæjarfélagið hafi greitt milljarða í verkefnið á undanförnum árum.

Að lokum segir Lárus að umræða um útlendingamál sé oft kæfð niður og að gagnrýni á málaflokkinn leiði til þess að flokkar eins og Miðflokkurinn séu stimplaðir sem einhverskonar ógn við samfélagið.

Hann segir sína eigin eigin reynslu af flokknum vera þá að þar sé fólk sem beri hag almennings fyrir brjósti og nefnir sérstaklega formann flokksins í því samhengi.

Hægt er að sjá brot úr viðtalinu hér fyrir neðan en ef þú vilt sjá allan þáttinn geturðu tryggt þér áskrift að Brotkast.is hérna.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing