Birta engar auglýsingar í Tælandi vegna andláts konungsins, árslangri þjóðarsorg lýst yfir

Engar auglýsingar eru á Facebook-síðum í Tælandi vegna árslangrar þjóðarsorgar sem lýst var yfir í landinu vegna andláts konungsins Bhumibol Adulyadej.

Frá þessu var greint í færslu á Facebook en þar segir að slökkt hafi verið á öllum auglýsingum í gær, 13. október, vegna þjóðarsorgarinnar. Þar kemur einnig fram að starfsfólk Facebook viti ekki hversu lengi sorgartímabilið muni standa yfir.

Tekið er fram að auglýsingar muni halda áfram að birtast á hefðbundinn hátt í öðrum löndum. Þá munu kaupendur auglýsinga í Tælandi fá auglýsingar sínar birtar í öðrum löndum en í Tælandi.

Flaggað verður í hálfa stöng við allar byggingar ríkisins í einn mánuð frá og með deginum í dag. Þá þurfa allir embættismenn landsins að klæðast svörtum fatnaði við störf sín í eitt ár.

Konungurinn settist á valdastól 18 ára gamall og var 88 þegar hann lést. Bhumi­bol hafði ríkt leng­ur en nokk­ur núlif­andi kon­ung­ur í heim­in­um.Son­ur hans, sem er 64 ára að aldri, Maha Vajiralong­korn, verður næsti kon­ung­ur lands­ins.

Auglýsing

læk

Instagram