Bjarki Þór vann Evrópumeistaratitil FightStar bardagasamtakanna

Bardagakappinn Bjarki Þór Pálsson vann í gærkvöldi Evrópumeistaratitil FightStar bardagasamtakanna eftir öruggan sigur á Quamer Hussain í Brentford Fountain Leisure Centre íþróttahöllinni í London. Það er vefsíðan mmafrettir.is sem greinir frá þessu.

Sjá einnig: Myndband: Birkir bekkur sigraði bardagakappann Bjarka Þór í æsispennandi keppni mysuþambi

Sigur Bjarka var aldrei í hættu en hann tók Hussain niður að vild allar þrjár loturnar. Þetta var fjórði atvinnumanabardagi Bjarka en hann hefur unnið þá alla.

Auglýsing

læk

Instagram