Bjarni Ben skreytti þessa köku

Bjarni Bene­dikts­son fjár­málaráðherra skreytti afmælisköku fyrir þriggja ára dóttur sína um helgina. Þetta kemur fram á Mbl.is.

Lína Langsokkur var þema skreytingarinnar en dóttir Bjarna og Þóru Margrétar Baldvinsdóttir heitir einmitt Guðríður Lína. Þóra Margrét segir í samtali við Mbl.is að Bjarni hafi gert nokkrar mjög flottar kökur í gegnum tíðina — til dæmis Hello Kitty köku:

Bjarni, eins og svo marg­ir aðrir auðvitað, á sér marg­ar hliðar. Hann er mjög list­rænn og sér­stak­lega flink­ur að leira. Þannig að syk­ur­mass­inn hentaði. Þetta er ekki i fyrsta skipti sem hann græj­ar af­mæl­is­köku fyr­ir börn­in. En þessi var sú allra flott­asta.

Kakan sem leyndist undir skreytingunni var hefðbundin súkkulaðikaka og var sykurmassi notaður til að skreyta.

Auglýsing

læk

Instagram