today-is-a-good-day

Bjóða 25 þúsund krónur í Herjólfsmiða

Þjóðhatíðargestir með heimþrá bjóða nú allt að 25 þúsund krónur í miða í Herjólf frá Vestamannaeyjum til Landeyjahafnar. Þetta kemur fram á Mbl.is.

Svarti markaðurinn er í Facebook-hópnum Þjóðhátíð 2014!!! en þar auglýsir fólk einnig eftir týndum símum, bíllyklum og öðru sem hefur týnst í hita leiksins um helgina. 25 þúsund krónur voru boðnar í miða til Landeyjahafnar klukkan 17 í dag en almennt miðaverð er 1.260 krónur.

Í samtali við Mbl.is sagðist Gunn­laug­ur Grett­is­son, rekstr­ar­stjóri Herjólfs, ekki hafa heyrt af þessu. „Ætli það sé ekki erfitt að eiga við það ef ein­hverj­ir ein­stak­ling­ar eiga miða í bát­inn og kjósa að selja hann,“ sagði hann. „Þjóðhátíðar­nefnd keypti 2/​3 af miðunum fyr­ir og eft­ir hátíðina til að koma í veg fyr­ir það sem hlýt­ur að flokk­ast und­ir svarta­markaðsbrask.“

Tilraunir til að koma í veg fyrir braskið virðast því hafa mistekist.

Auglýsing

læk

Instagram