Bláa lónið veitir Victoria’s Secret innblástur

Undirfataframleiðandinn Victoria’s Secret hefur sett á markað íþróttaföt sem eru innblásin af Bláa lóninu. Fötin eru í Knockout-línunni og fást í takmörkuðu upplagi.

Victoria’s Secret upplýsti á Twitter-síðu íþróttalínu sinnar í dag að Bláa lónið væri innblásturinn og birti þessa mynd með.

Það þarf varla að kynna Victoria’s Secret fyrir fólki en fyrirtækið er stærsti undirfataframleiðandi Bandaríkjanna. Fyrirtækið selur einnig ýmsan varning fyrir konur, svo sem íþóttaföt og snyrtivörur.

Auglýsing

læk

Instagram