Bláberjaleit tefur nýja plötu frá Mugison

Mugison er búinn að vera að leita að bláberjum og þess vegna hefur nýja platana tafist. Þetta kemur fram í skilaboðum frá tónlistarmanninum á Facebook.

Sjá einnig: Hlustaðu á nýja lagið með Mugison

„Er búinn að vera leita af Bláberjum síðustu vikur og þess vegna seinkar platan fram á næsta ár,“ segir hann. „Ætla að spila á nokkrum tónleikum í Nóvember – læt ykkur vita fljótlega.

Mugison sendi síðast frá sér lagið Lazing On en það hljómar núna á útvarpsstöðvum.

Hann sendi frá sér plötuna Haglél árið 2011 sem var sú fyrsta sem hann söng á íslensku. Platan seldist ótrúlega vel, í meira en 30 þúsund eintökum, og var valin plata ársins á íslensku tónlistarverðlaununum. Lagið Stingum af var á plötunni en það naut gríðarlegra vinsælda.

Auglýsing

læk

Instagram