Greenwood lastar breska blaðafólkið Julia Hartley-Brewer og Piers Morgan fyrir gagnrýni þeirra á hljómsveitinni Little Mix og segir að gagnrýni þeirra byggist á gamaldags skoðunum á hlutverki kvenna í popptónlist.
Auglýsing
Hann segir að popptónlist sé nú í auknum mæli að þróast út í vettvang fyrir ungar konur með sterkar skoðanir og tekur Glowie og bandarísku söngkonuna Billie Eilish sem dæmi.
Hann segir að Glowie sé listakona sem gæti mögulega þaggað niður í úreltum skoðunum miðaldra, glórulauss, poppfóbísks fólks. Hann tekur lagið Body eftir Glowie sem dæmi og segir að lengi vel hafi kvenmenn ekki mátt semja slík lög, einungis karlmenn.
„Glowie er ung kona sem stimplar sig inn með grípandi lagi sem fjallar einfaldlega um það að dáðst að kynæsandi karlmanni,“ skrifar hann.
Þá hrósar hann Glowie einnig fyrir Instagram síðu hennar en þar er hún dugleg að tala fyrir jákvæðri líkamsímynd.