Blake Shelton valinn kynþokkafyllsti karlmaður heims og margir eru reiðir: „Álíka kynþokkafullur og glútenlaus saltkringla“

Bandaríski söngvarinn Blake Shelton hefur verið valinn kynþokkafyllsti karlmaður ársins 2017. Blake bætist í hóp manna á borð við David Beckham, Chris Hemsworth og Dwayne Johnson sem allir hafa verið valdir. Óhætt er að segja að ákvörðun blaðisins um að velja Blake fari misvel í fólk á internetinu.

Blaðið tilkynnti þetta með ansi skemmtilegu myndbandi á Twitter þar sem Blake tjáði samstarfsmanni sínum úr þáttunum The Voice, Adam Levine þær fréttir að hann hefði hlotið þennan mikla heiður. Myndbandið má sjá hér að neðan en Adam vann titilinn eftirsótta árið 2013.

Margir undrast ákvörðun blaðsins en slúðursíðan toofab.com tók saman nokkur góð tíst frá reiðum netverjum.

https://twitter.com/kyleo71/status/930606961145638912

Auglýsing

læk

Instagram