Cherie náði að lokum að hitta Helga sem mundi ekkert eftir henni

Vísir sagði í síðustu viku frá bandarískri konu sem stödd var hér á landi meðal annars til að finna gamlan skólafélaga sem heitir Helgi. Eftir ábendingar hafði Nútíminn uppi á Helga sem mundi ekkert eftir konunni og hafði ekkert við hana að segja. Þrátt fyrir lítinn áhuga Helga í fyrstu greinir Vísir frá því í dagCherie hafi að lokum náð að hitta Helga.

Sjá einnig: Bandarísk kona óskaði eftir hjálp við að finna gamlan bekkjarfélaga, hann er fundinn en kannast ekki við konuna

„Hann mundi nú ekkert eftir mér. En það er allt í lagi,“ sagði Cherie í samtali við Vísi en þar kemur jafnframt fram að hún hafi komist í samband við bróðir Helga sem ætlar að hitta hana í Bandaríkjunum.

Helgi sjálfur virtist ánægður með endurkomuna og sagði við Vísi að Cherie væri indæl kona og að það hefði verið gaman að spjalla við hana.

Auglýsing

læk

Instagram