Costco auglýsir eftir starfsfólki vegna mikilla anna, verður að geta byrjað strax

Vegna mikilla anna í Costco í Kauptúni síðustu daga auglýsir fyrirtækið eftir starfsfólki í hinar ýmsu deildir verslunarinnar sem getur hafið störf strax. Fyrirtækið var opnað á þriðjudaginn fyrir tæpri viku en tveimur dögum seinna var auglýsingin birt.

Sjá einnig: Viðskiptavinir Costco ráku upp stór augu þegar Bjarni Ben mætti í Costco og sótti kortið sitt

Í auglýsingunni segir að vöruhúsið hafi verið opnað við góðar undirtektir og að fyrirtækið taki fagnandi á móti umsóknum. Leitað er að þjónustulunduðu og stundvísu fólki, 18 ára og eldri, sem er sveigjanlegt og getur hafið störf þegar í stað.

Auglýsing

læk

Instagram